10. mars 2010
Við þurfum 22 svona leiki í sumar
"Það verður að segja eins og er að þetta var besti leikur HK undir minni stjórn og eiginlega sorglegt að við skyldum ekki ná betri úrsliutm. Þó ég segi og stefni alltaf á sigur get ég ekki annað en verið ánægður með leik minna manna," sagði Tómas Ingi Tómasson þjálfari meistaraflokks karla hjá HK eftir nauman ósigur, 2:3, gegn Blikum í Lengjubikarnum í Kórnum í gærkvöld.
"Auðvitað eru þættir í okkar leik sem við þurfum að laga og það er eðlilegt. Við spiluðum við Blika sem að mínu áliti eru eitt af fjórum sterkustu liðum úrvalsdeildar í augnablikinu, eru vel spilandi og með góðan mannskap. En þetta lið sem við mættum í gær hafði ekkert umfram okkur í getu.
Við börðumst allir sem einn og ég er sérstaklega ánægður með þann þátt, ásamt vinnusemi leikmanna. Mörkin sem við skoruðum voru frábærlega útfærð og greinilegt að menn leita að félaganum sem er í betra færi, eins og þegar Höddi gaf á Dodda.
Mér fannst margir spila sinn besta leik eftir að ég tók við en vona bara a ð þetta sé ekki barátta sem við náum bara upp gegn Blikum. Við þurfum 22 svona leiki í deildinni og þá verðum við í góðum málum eftir sumarið.
Við tökum fullt af góðum hlutum með okkur úr þessum leik og um þá fáu sem við gerðum illa ræddum við að leik loknum og skildum þá eftir í Kórnum," sagði Tómas Ingi, og kvaðst vonast til að geta byggt ofaná þennan leik þegar HK mætir ÍBV í Kórnum um hádegið á sunnudaginn.
Mynd: Hörður Magnússon lagði upp annað mark HK fyrir Þórð Birgisson á mjög óeigingjarnan hátt.
Til baka
Föstudaginn 3.september
16.30 Fjarðabyggð/Leiknir - HK, Úrslit 4.ka.A, knatt.
Laugardaginn 4.september
14.00 Leiknir R. - HK, 1.deild ka., knatt.
Laugardaginn 4.september
14.00 Keflavík - HK, Úrslit 4.ka.A, knatt.
Sunnudaginn 5.september
12.00 KA - HK, Úrslit 4.ka.A, knatt.
Sunnudaginn 5.september
14.00 Þróttur R. - HK/Víkingur, 2.kv., knatt.
Miðvikudaginn 8.september
18.00 ÍBV/KFS - HK/Ýmir, 2.ka., knatt.

Upplýsingar um mótið 2010
Reykjavíkurmót 2010