Fréttir

16. mars 2010

Stúlkum úr HK/Víkingi boðið til Malmö

Halldóra Björk Sigurðardóttir, þjálfari 2. flokks kvenna hjá HK/Víkingi, dvaldi á dögunum hjá sænska stórliðinu Malmö. Í  framhaldi af því hefur HK/Víkingi verið boðið að senda tvo leikmenn til æfinga með unglingaliði félagsins í vor. Einn af þjálfurum unglingaliðsins er Ásthildur Helgadóttir, fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands sem áður lék sem atvinnumaður með Malmö.

Með aðalliði Malmö leika landsliðskonurnar Þóra B. Helgadóttir og Dóra Stefánsdóttir.

Halldóra sagði við HK-vefinn að heimsókn hennar hefði verið liður í endurmenntun sinni sem þjálfara. Hún er með UEFA-A þjálfaragráðu hjá KSÍ og henni þarf að viðhalda með endurmenntun á tveggja ára fresti.

"Ég fór á æfingar hjá aðal- og unglingaliði Malmö og sá aðalliðið spila tvo æfingaleiki gegn dönsku liðunum Bröndby og Skovlunde. Eins hitti ég Martin Sjögren, aðalþjálfara Malmö, og átti gott spjall við hann þar sem hann sagði mér frá starfi sínu.

Ég fékk góðar æfingar og hugmyndir varðandi marga þætti sem munu nýtast mér í starfi sem þjálfari. Ég tel að Svíarnir séu skrefi á undan okkur í mörgum þáttum og þar ber helst að telja tækni í móttöku og sendingum, ásamt hraða.

Eftir að ég vann með Vöndu Sigurgeirsdóttur á sínum tíma hef ég verið mjög smituð af þessari uppbyggingu Svíanna en Vanda var þar og kom með mikið af nýungum inní íslenska kvennaboltann á sínum tíma," sagði Halldóra.

Hún sagði að hugmyndin væri sú að nýta boð Malmö um að senda þangað tvo leikmenn strax í vor.

"Nánari tímasetning er ekki komin en við þurfum að finna tíma sem hentar báðum liðum. Stúlkurnar verða í eina viku og æfa með unglingaliðinu, og þetta er frábært tækifæri fyrir ungar stelpur til að sýna sig og sanna á æfingum hjá einu fremsta kvennaliði Evrópu," sagði Halldóra Björk.

Mynd: Halldóra fylgist með meistaraflokki kvenna í leik innanhúss.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvar endar HK í 1. deild karla í sumar?

1.-2. sæti


3.-4. sæti


5.-6. sæti


Neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið