16. maí 2010
HK sigraði í 1.deild kvenna á MOSÖLD 2010
35.öldungamóti Blaksambands Íslands lauk í Mosfellsbænum í gær. Óhætt er að segja að árangur HK-inga hafi verið frábær á mótinu. HK konur vörðu öldungamótsmeistaratitilinn í 1.deild kvenna (+30 ára). Höfðu þær nokkra yfirburði í deildinni og töpuðu ekki hrinu á mótinu. Í öðru sæti í 1.deild kvenna varð lið ÍS með HK-ingana Þóreyju Haralds og Ingibjörgu Gunnars í fararbroddi.
HK-ingurinn Brynjar Pétursson átti stórkostlegt mót bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann spilaði með uppeldisliði sínu, Þrótti úr Neskaupsstað, sem sigraði í 1.deild karla eftir æsispennandi keppni við KA og Stjörnuna. Bæði lið Brynjars unnu sínar deildir líkt og undanfarin ár og ljóst að HKutd 1 er á hraðri siglingu upp í 1.deild. HKutd 1 sigraði í 3.deild kvenna og leikur því í 2.deild að ári. HKutd 2 sigraði í 6.deild kvenna og leikur í 5.deild að ári.
Gaman er að segja frá því að annað af byrjendaliðum HK sem lék í 10.deild kvenna hafnaði þar í 2.sæti. Tvö lið færast upp um deild í neðri deildum öldungamóts og kemur liðið til með að leika í 9.deild á næsta öldungamóti.
Á lokahófi í gærkvöldi var tilkynnt hvar næsta öldungamót yrði haldið og urðu Vestmannaeyjar fyrir valinu. HK hefur sótt um að halda mótið tvö ár í röð. HK mun halda áfram undirbúningi og stefnir að því að gera mótið sem allra glæsilegast þegar Kópavogur verður fyrir valinu. Öldungamót hefur ekki verið haldið í Kópavogi síðan 1990. HK mun sækja um að halda mótið 2012. Uppbygging aðstöðu þar sem unnt er að taka á móti 1000 keppendum í sama keppnishúsi (a.m.k. 8 blakvellir) myndi styrkja umsókn HK til muna. Almenn ánægja var með þá aðstöðu sem boðið var upp á í Mosfellsbæ um helgina, þar sem leikið var á 9 völlum á sama svæði. Viljum við þakka Aftureldingu fyrir frábært mót sem var vel skipulagt í alla staði.
Myndir
Heiðbjört Gylfadóttir (Heiða), fyrirliði HK með bikarana
Öldungamótsmeistarar í 1.deild kvenna (Nína, Inga Rut, Dagný, Birna, Heiða, Karen, Sibba og Fríða)

Fagrilundur 2010-2011