Fréttir

17. maí 2010

A-landsliðsmenn úr HK hljóta styrk úr Afrekssjóði UMSK

Tíu leikmenn meistaraflokka HK í blaki fengu í dag styrk úr Afrekssjóði UMSK vegna þátttöku í EM smáþjóða sem fram fer á Möltu í júní næstkomandi. Kostnaður landsliðsmanna sjálfra vegna þátttöku í landsliðsverkefnum á vegum BLÍ hefur verið mikill undanfarin ár og mun styrkurinn létta verulega undir með okkar glæsilega landsliðsfólki. Vill blakdeild HK koma á framfæri þakklæti til UMSK fyrir stuðninginn.

Mynd: Fríða Sigurðardóttir leikmaður HK í landsleik gegn Skotum 2007 þegar Ísland varð Evrópumeistari smáþjóða.




Til baka

Á næstunni

Enginn atburður skráður

Könnun

hefur þú spilað eða æft blak?

já ég æfi, rosa gaman! ;)


ég hef æft, langar að byrja aftur


æfði einu sinni...


hef prófað og langar til að æfa


hef prófað aðeins


nei...


OZON-Vefumsjónarkerfið