Fréttir

24. júlí 2010

Sölvi með tvö gegn Tindastóli

HK-ingarnir í Ými, með 8 leikmenn úr 2. flokki í byrjunarliðinu, velgdu toppliði Tindastóls undir uggum lengi vel í Fagralundi í 3. deildinni í dag. Það var ekki fyrr en á lokamínútunum sem Sauðkrækingarnir náðu að tryggja sér sigur með tveimur mörkum, 4:2. Sölvi Víðisson, 17 ára, skoraði bæði mörk Ýmis.

Þetta var hörkuleikur og þó Ýmir hafi skilað af sér nokkrum lykilmönnum sínum yfir í meistaraflokk HK undanfarnar vikur hafa yngri strákarnir nýtt tækifærið vel til að láta ljós sitt skína. Auk þeirra 8 úr 2. flokki sem hófu leikinn komu fjórir til viðbótar inná í seinni hálfleiknum.

Allt stefndi í markalausan fyrri hálfleik eftir jafna baráttu og nokkur færi á báða bóga. En þegar mínúta var eftir af honum slapp Ragnar Hjaltested inní vítateiginn, framhjá tveimur varnarmönnum Tindastóls, en virtist búinn að missa af færinu þegar hann renndi boltanum til hliðar á Sölva sem þrumaði honum í netið, 1:0 í hálfleik.

Það voru aðeins liðnar þrjár mínútur af seinni hálfleik þegar Tindastóll fékk vítaspyrnu eftir að skotið var í hönd varnarmanns Ýmis í teignum. Úr henni jafnaði Aðalsteinn Arnarsson, 1:1.

Ragnar fékk dauðafæri til að koma Ými yfir um miðjan seinni hálfleik, komst aleinn gegn markverðinum eftir sendingu Ólafs V. Júlíussonar en skot hans var varið. Í staðinn skoraði Ingvi H. Ómarsson fyrir Tindastól úr skyndisókn skömmu síðar, 1:2, nokkuð gegn gangi leiksins á þeim tíma því Ýmir var með yfirhöndina á vellinum lengst af í seinni hálfleiknum. Ólafur og Andri Valgeirsson réðu algjörlega ferðinni á miðjunni og voru þar með öll völd.

Það var því verðskuldað þegar Ýmir jafnaði metin á 72. mínútu. Glæsileg sókn frá eigin vítateig og henni lauk með því að Ólafur renndi boltanum á milli varnarmanna og inní vítateiginn hægra megin þar sem Sölvi kom á ferðinni og afgreiddi boltann með jörðu í fjærhornið, 2:2. Virkilega vel gert.

Þarna gat leikurinn sveiflast á hvorn veginn sem var en 9 mínútum fyrir leikslok skoraði Arnar Sigurðsson fyrir Sauðkrækinga og tveimur mínútum síðar bætti Kristinn Hjartarson við marki fyrir gestina með skalla eftir hornspyrnu og lokatölur því 2:4.

Lið Ýmis:
Mark:
Gunnar Geir Gunnlaugsson.
Vörn: Erlingur Ingason, Birkir Ingibjartsson, Þórður Hans Baldursson, Guðni B. Ásgeirsson.
Miðja: Andri Valgeirsson (Júlíus Geir Sveinsson 85.), Ólafur V. Júlíusson, Bjarki Eldjárn (Eyjólfur Örn Eyjólfsson 80.)
Sókn: Sölvi Víðisson, Ragnar Hjaltested (Steinar Páll Steingrímsson 88.), Friðrik Þór Gunnarsson (Jimmy Salinas Moreno 69.)
Varamaður: Henry Þór Reynisson (meiddist í upphitun)

Ragnar Bogi Petersen þjálfari Ýmis var ekki með liðinu í dag þar sem hann er með U18 ára landsliðinu í Svíþjóð en Sigurður Víðisson, leikmaður Ýmis, stjórnaði liðinu í hans stað. Jóhann Ingi Jóhannsson lék ekki með þar sem hann tók út leikbann.

Leikmenn meistaraflokka HK og Ýmis 2010.

Mynd: Ólafur V. Júlíusson var öflugur með Ými í dag og lagði upp seinna markið.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvar endar HK í 1. deild karla í sumar?

1.-2. sæti


3.-4. sæti


5.-6. sæti


Neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið