Fréttir

28. júlí 2010

Tómas Ingi: Vildi öll þrjú en stigið er mikilvægt

Tómas Ingi Tómasson þjálfari HK var óánægður með frammistöðu liðsins í fyrri hálfleiknum gegn Gróttu í kvöld en sáttur við seinni hálfleikinn. Liðin skildu jöfn, 2:2, og Tómas Ingi sagði við HK-vefinn að hann hefði að sjálfsögðu viljað þrjú stig í hús en stigið væri samt mikilvægt.

"Mér fannst við vera betri aðilinn í seinni hálfleik og eiga meira skilið en þetta eina stig, en auðvitað er ég litaður og kannski var jafnteflið sanngjarnt. Þegar á heildina er litið er stigið mikilvægt, við máttum alls ekki tapa þessum leik og í stöðunni 1:2 hugsaði ég ekki um annað en við yrðum að jafna. Það mátti bara ekki gerast að við færum inn í þetta stutta hlé með tap á bakinu, sem myndi gera okkur stöðuna erfiðari. Stigið er því kærkomið þó ég hefði viljað öll þrjú en það skipti miklu máli að Grótta skyldi ekki ná að komast að hliðinni á okkur," sagði Tómas Ingi.

Alltof stressaðir í fyrri hálfleiknum

Hann hafði skýringu á reiðum höndum á slakri frammistöðu liðsins í fyrri hálfleiknum.

Ég sagði við strákana fyrir leikinn að þeir yrðu að vera dálítið passasamir með sendingar og spila ekki of mikið í gegnum miðjuna þar sem við vorum með tvo nánast nýja menn, Ólaf og Brynjar. Reyna að hafa einfaldleikann í fyrirrúmi. Þetta virtust þeir skilja sem svo að þeir ættu að sparka boltanum eins langt fram og þeir gætu í hvert skipti sem þeir fengju hann. En það var þá misskilningur okkar á milli. Mér fannst þeir vera alltof stressaðir með boltann í fyrri hálfleiknum, og virkuðu hreinlega hræddir, og þannig vinnur maður einfaldlega ekki fótboltaleiki," sagði Tómas Ingi um fyrri hálfleikinn.

"Við töluðum um það í hálfleik að við myndum aldrei vinna ef við héldum áfram í panik og hræðslu við boltann. Mér fannst strákarnir taka þeirri tilsögn vel og bregðast rétt við í seinni hálfleik. Okkar leikur var allt annar og varnarfærslurnar voru mun betri. Það hjálpaði okkur reyndar að Grótta missti sinn hættulegasta leikmann útaf í seinni hálfleik."
 
Viljinn kom í ljós síðustu 25 mínúturnar

"En mér fannst þeir sem komu inní liðið í kvöld standa sig virkilega vel og síðustu 25 mínúturnar voru nokkuð góðar. Að því leyti að þá byrjuðu menn að berjast og gera það sem maður vonast eftir að þeir geri í öllum leikjum. Þar kom viljinn í ljós, við náðum að jafna, og vorum ekki sáttir við þá stöðu. Menn héldu áfram að djöflast við að reyna að vinna leikinn. Auðvitað opnaðist þá vörnin hjá okkur líka en við fengum seinasta færið í leiknum. En Axel skoraði þrennu fyrir 2. flokkinn í gær og var búinn með kvótann í vikunni," sagði Tómas Ingi.

Mikil forföll voru í liði HK í kvöld vegna meiðsla og leikbanna og Tómas Ingi átti í mestu erfiðleikum með að setja saman liðið. Þeir Ólafur V. Júlíusson og Andri Valgeirsson komu úr Ými daginn fyrir leik og Brynjar Víðisson hóf æfingar á ný fyrir nokkrum dögum eftir tveggja mánaða fjarveru.

Stærri hópur fyrir næsta leik

Tómas Ingi sagði að sem betur fer væri útlit fyrir að hann hefði stærri hóp til umráða fyrir næsta leik.

"Þeir Hafsteinn og Leifur eru þá lausir úr leikbanni, Bjarki Már er á leiðinni eftir meiðsli, Almir er á heimleið og verður kominn fyrir þarnæsta leik. Ólafur ætlar að halda áfram með okkur út tímabilið og ég vona að við fáum að njóta Brynjars eitthvað áfram. Þetta eru allt fínir fótboltamenn sem þétta hópinn en aftur á móti er ekki þar með sagt að þeir ýti ungu strákunum, sem hafa staðið sig svo vel, til hliðar. Margir sem hafa stigið sín fyrstu skref í síðustu leikjum hafa staðið sig frábærlega.

Sem betur fer eykst samkeppnin um stöður í liðinu á nýjan leik og ég vona svo sannarlega að næst þegar ég vel í hóp og lið að ég verði í meiri vandræðum en fyrir leikinn í kvöld. Við þurftum að ná í nokkra leikmenn til að eiga í lið og það kemur vonandi aldrei fyrir aftur. En þessi hópur er það sem við vinnum með og ég reyni að gera mitt besta úr þessu.




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hvar endar HK í 1. deild karla í sumar?

1.-2. sæti


3.-4. sæti


5.-6. sæti


Neðar


OZON-Vefumsjónarkerfið