Æfingagjöld HK 2010-2011

Knattspyrnudeild:

3.-5. fl. karla og kvenna, kr.
6. fl. karla og kvenna, kr.
7. fl. karla og kvenna, kr.

8. fl. karla og kvenna, kr.


Handknattleiksdeild:
8. fl.  kr. 16.000.-  (Foreldrar kr. 1.000 – með styrk frá ÍTK)
7. fl.  kr. 30.000.-  (Foreldrar kr. 15.000 – með styrk frá ÍTK)
6. fl.  kr. 40.000.-  (Foreldrar kr. 25.000 – með styrk frá ÍTK)
5. fl.  kr. 42.000.-  (Foreldrar kr. 27.000 – með styrk frá ÍTK)
4. fl.  kr. 47.000.-  (Foreldrar kr. 22.000 – með styrk frá ÍTK)
3. fl. kk og unglingafl kvk  kr. 49.000.-  (Foreldrar kr. 24.000 – með styrk frá ÍTK)

Æfingagjöld barna- og unglingráðs handknattleiksdeildar HK verða óbreytt frá því í fyrra og árið þar áður. Að þessu sinni leggjast hins vegar 1.000.- kr. ofan á í mótagjöld á hvert barn.



Blakdeild:
7. fl.  kr. 20.000.-  (Foreldrar kr. 5.000 – með styrk frá ÍTK)
6. fl.  kr. 20.000.-  (Foreldrar kr. 5.000 – með styrk frá ÍTK)
5. fl.  kr. 30.000.-  (Foreldrar kr. 15.000 – með styrk frá ÍTK)
4. fl.  kr. 35.000.-  (Foreldrar kr. 20.000 – með styrk frá ÍTK)
3. fl.  kr. 40.000.-  (Foreldrar kr. 25.000 – með styrk frá ÍTK)


Borðtennisdeild:
15 ára og yngri - æfingagjald kr.

Taekwondo:
æfingagjald kr. 37.500.- (Foreldrar kr. 22.500 – með styrk frá ÍTK)

Systkina- og fjölgreinaafsláttur:
 

19. grein – Sérákvæði um æfingagjöld

Afslættir af æfingagjöldum skulu einvörðungu veittir af þeirri upphæð sem félagið innheimtir hjá iðkenda. Þó skal aldrei veita hærri afslátt en sem nemur 20% af innheimtu æfingagjaldi.

Fjölgreinaafsláttur, deildir félagsins skulu veita 20% afslátt af æfingagjöldum sínum fyrir hvern þann félaga sem kýs að iðka fleiri en eina íþrótt innan félagsins.

Systkinaafsláttur, deildir félagsins skulu veita 20% afslátt af æfingagjöldum sínum til hvers þess félaga sem á systkyn sem greiðir æfingagjald hjá félaginu.


Niðurgreiðsla æfingagjalda 2010- 2011

 


Kópavogsbær vill vekja athygli foreldra og forráðamanna barna á niðurgreiðslu æfingagjalda vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna á aldrinum 5-17 ára. Frá og með haustinu 2010 verður greiddur styrkur vegna barna sem fædd eru á árunum 1993 - 2005. Á slóðinni
http://www.kopavogur.is/itk/nidurgreidsla/ á heimasíðu Kópavogsbæjar má sjá lista yfir þá aðila sem falla undir Niðurgreiðslur æfingagjalda. 

Tónlist, tónlistarnám og líkamsræktarkort falla ekki undir niðurgreiðslu æfingagjalda.

 

Styrkurinn fyrir eina grein getur orðið allt að 15 þúsund krónur á ári. Hvert barn getur fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina og samtals getur styrkurinn því orðið kr. 30.000,- að hámarki á ári. Ef iðkun greinar er annarskipt þá er greitt hálft gjald fyrir hverja önn að hámarki kr. 7.500,-, þó aldrei hærra en kr. 15.000,- fyrir árið.

Framkvæmd niðurgreiðslunnar er þannig háttað að íþróttafélögin innheimta æfingagjöldin og sjá um að sækja styrkinn til bæjarins. Þetta þýðir að ef æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 30.000,- greiðir foreldri/forráðamaður kr. 15.000,- til félagsins og félagið sækir framlagið kr. 15.000,- til bæjarfélagsins. Þetta á einnig við um Skátafélagið Kópa og Myndlistaskóla Kópavogs. 

Iðkandi sem er í tómstundafélagi og þeir sem stunda tómstundir og íþróttir utan Kópavogs en eiga lögheimili í bæjarfélaginu, eða forráðamaður þeirra, þurfa að sækja styrkinn í þjónustuver Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð. Með framvísun greiðslukvittunar fyrir viðkomandi grein verður styrkurinn greiddur út.

Reglur og skilyrði fyrir styrk vegna niðurgreiðslu æfingagjalda eru eftirfarandi;

  1. Að barnið eigi lögheimili í Kópavogi.
  2. Að barnið iðki íþróttir/tómstundir á ársgrundvelli.
  3. Iðkandi getur aðeins fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina.
  4. Styrkur getur aldrei orðið hærri en æfingagjald viðkomandi íþrótta-/ tómstundagreinar.
  5. Hámarksstyrkur á hverja grein er kr. 15.000,-
  6. Við greiðslu æfingagjalda kemur styrkurinn til frádráttar æfingagjaldi.
  7. Til að félögin/iðkendur fái styrkinn greiddan frá ÍTK þarf að framvísa staðfestingu á greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.
  8. Til að einstaklingar sem stunda tómstundir eða íþróttir utan Kópavogs fái styrkinn frá ÍTK þarf að framvísa staðfestingu á greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.
  9. Að um sé að ræða skipulagt íþrótta- og tómstundastarf.

    Mikilvægt er að greiðslukvittanir berist tímanlega fyrir hverja önn. Með önn er átt við haustönn (frá 1.júlí – 31.des) og vorönn (frá 1.jan – 30.júní). Aðeins er greitt fyrir eina önn aftur í tímann. Berist greiðslukvittun ekki innan þessa tíma fellur greiðslan niður.

    Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs




Til baka

Á næstunni
Könnun

Hve gamalt verður HK árið 2010?

30 ára


35 ára


40 ára


45 ára


50 ára


OZON-Vefumsjónarkerfið