Rafíþróttadeild HK

Rafíþróttaæfingar HK í samstarfi við Arena hefjast í haust, skráning hefst í Abler þann 24. júlí 2024. 

Lagðar verða áherslur á það að iðkendur læri rétta hegðun á internetinu, rétta líkamsbeitingu við tölvunotkun, mikilvægi andlegrar heilsu sem og þjálfun vöðvaminnis og snerpu.
Mikilvægt er að börnin fari úr sínu eigin herbergi og mæti á rafíþróttaæfingu þar sem iðkendur hitta jafnaldra sína með sömu áhugamál og heilbrigða nálgun við tölvuleiki undir stjórn reyndra þjálfara. Ungmennamót verða haldin í lok hverrar annar þar sem meðal annars er keppt í Fortnite, Valorant, Minecraft o.fl.

Uppsetning æfinga:
20 mín - Hreyfing.
20 mín - Upphitun í spilun.
30 mín - Spilun með markmiði og skipulagi.
20 mín - Hreyfing og slökun.

Allar æfingar fara fram í glæsilegri aðstöðu Arena, Smáratorgi 3.