Arnþór Ari framlengir við HK


Miðjumaðurinn reyndi Arnþór Ari Atlason hefur framlengt samning sinn við HK út keppnistímabilið 2023.

Arnþór Ari gekk til liðs við HK vorið 2019 og hefur reynst HK liðinu sérstaklega vel í baráttunni í efstu deild. Arnþór Ari hefur leikið 135 leiki í efstu deild og skorað í þeim 20 mörk.

Við óskum Arnþóri Ara hjartanlega til hamingju.

 

Áfram HK!


GLEÐI - VIRÐING - METNAÐUR