- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
_
HK hefur samið við Láru Einarsdóttur um að leika með liði félagsins í Lengjudeildinni á komandi sumri. Lára er reynslumikill leikmaður en hún kemur til HK frá Þór/KA. Hún hefur samtals leikið 187 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim leikjum 9 mörk. Lára er annar leikjahæsti leikmaður í sögu Þór/KA og hefur allan sinn feril leikið í efstu deild. Hún á svo að baki 4 landsleiki með U16, 12 með U17 og 3 með U19. Lára varð Íslandsmeistari með Þór/KA árin 2012 og 2017.
„Lára er frábær varnarmaður sem mun koma til með að styrkja okkar hóp til muna, bæði með gæðum sínum og reynslu. Við erum gríðarlega ánægð að hún ætli að taka slaginn með okkur í sumar“.
- Jakob Leó Bjarnason, þjálfari HK.
Vertu velkomin Lára og áfram HK!