- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
_
Við kynnum Louisu til leiks sem nýjan Íþrótta– og verkefnastjóra hjá okkur í HK.
Louisa tók á dögunum við starfi íþrótta- og verkefnastjóra HK. Hún tekur við starfinu af Jóni Þór og vill HK þakka honum fyrir samstarfið.
Louisa var verknámsnemi hjá okkur á skrifstofu HK á seinasta ári og starfsemi félagsins því vel kunn. Louisa er uppalinn Vestmannaeyingur, fædd þann 22. apríl 1989. Hún stundar nám í Íþrótta- og heilsufræðum við Háskólann í Reykjavík og er um þessar mundir að vinna að lokaverkefni sínu í samvinnu við HK og mun útskrifast með BSc. gráðu í vor.
Við vonumst til að Louisu eigi eftir líði vel hjá okkur í HK og bjóðum hana velkomna til starfa.
Fyrir hönd HK
Hanna Carla Jóhannsdóttir
Framkvæmdastjóri HK