_
Selma Þóra Jóhannsdóttir hefur samið til tveggja ára við Handknattleiksdeild HK!
Selma er 22 ára markmaður sem kom upprunalega á láni frá Gróttu á þessu tímabili en verður núna áfram í herbúðum félagsins næstu tvö árin. Selma hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Það eru frábærar fréttir að halda Selmu innan raða HK.