Herrakvöld knattspyrnudeildar

Herrakvöld Knattspyrnudeildar HK verður haldið föstudaginn 1. nóvember og verður það glæsilegasta herrakvöld allra tíma! 

Húsið opnar klukkan 19:00 og hefst formleg dagskrá kl.20:00. Steikarhlaðborð að hætti LUX veitinga og veislustjórn verður í höndum Jóa Ásbjörns. Tónlistaratriði frá Frikka Dór og ræðumaður kvöldsins verður Gunnar á Völlum. 

Meðal uppboðsmuna eru listaverk eftir Sigurð Sævar, Tolla og Hjalta Parelíus ásamt treyjur frá HK hetjum og fleirum. 

Miðaverð 14.900kr, bókaðu strax borð með tölvupósti á arnor@hk.is