Stórmót HK og Stiga fór fram 9. nóvember í Snælandsskóla.
Alls tóku 47 keppendur þátt í Stórmóti HK og Stiga, sem fram fór í Íþróttahúsi Snælandsskóla 9. nóvember. Í karlaflokki voru keppendur 41 og 6 í kvennaflokki. Systkinin Pétur Gunnarsson og Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, bæði úr KR sem báru sigur úr býtum og fengu glæsilega Stiga Cybershape spaða frá
pingpong.is að launum.