Sigurður Jefferson Guarino semur að nýju við HK og hefur framlengt samning sinn til ársins 2027. Sigurður hefur spilað upp alla yngri flokka hjá félaginu og er nú orðinn burðarás í liði meistaraflokks félagsins. Sigurður er línumaður að upplagi en hefur einnig spilað sem hornamaður á þessu tímabili. Sigurður er jafnframt einn allra besti varnarmaður í Olís deildinni.
Stjórn HK er gríðarlega ánægð með að svo öflugur leikmaður hafi ákveðið að framlengja samning sinn við félagið, enda bindum við miklar vonir við Sigurð.