HK ungmenni í U-liði Íslands í blaki

U-lið Íslands héldu til Bridlington fyrr í sumar á strandblaksmót á vegum NEVZA. Í þessum flotta hópi átti HK 5 leikmenn sem stóðu sig öll ótrúlega vel. Helena Einarsdóttir og Heba Sól Stefánsdóttir tóku 3. sætið í U20 stúlkna og spiluðu ótrúlega vel. Við erum ótrúlega stolt af þessum flotta hópi og óskum þeim til hamingju með sitt fyrsta stranblaks-landsliðsverkefni.
Emil Már lenti í 6. sæti í U18, Jökull lenti í 5. sæti í U20 og Tómas lenti í 6. sæti í U20.
Aðalþjálfari liðanna var Borja González og honum til aðstoðar var Matthildur Einarsdóttir.