Arna Sólrún til Spánar

Sterkur leikmaður úr liði meistaraflokks kvenna  Arna Sólrún Heimisdóttir gerði samning á haustdögum við spænska liðið Club Voleibol San Juan. Liðið fór upp í 2. deild fyrir síðasta tímabil og stefnir enn hærra fyrir komandi tímabil. Arna mun spila þar með Jónu Margréti Arnarsdóttur úr KA, en hún endurnýjaði samning sinn við liðið eftir eins árs dvöl. Tímabilið hefst 14. september á Copa Comunitat Valencia 2024 sem er haustmót með útsláttarfyrirkomulagi. Deildin hefst svo 6. október. Við óskum Örnu og Jónu góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með þeim.