Plokkdagurinn er á sunnudaginn

Við látum ekki okkar eftir liggja og tökum þátt í Stóra plokkdeginum, sunnudaginn 27. apríl frá kl. 11:00-13:00. Þann dag verður Stóri plokkdagurinn haldinn hátíðlegur um allt land og hvetjum við alla fölskylduna til að fjölmenna í Kórinn og láta hendur standa fram úr ermum. Pokum verður úthlutað á staðnum en hvetjum við fólk til að mæta með hanska og verkfæri s.s. skóflur, kústa og plokktangir. Fjölmennum í Kórinn og gerum félagshúsið og umhverfið fallegt fyrir sumarið. Heitt á könnunni og góð stemning.

#LiðFólksins #HKalltafHK