- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Upplýsingar til sambaðsaðila ÍSÍ um tilslakanir á samkomutakmörkunum, Reykjavík, 11. febrúar 2022
Afléttingar á sóttvarnarreglum hafa verið boðaðar og tekur ný reglugerð gildi á miðnætti. Reglur um sóttkví verða þó afnumdar strax í dag.
Helstu reglur er varða íþróttahreyfinguna verða eftirfarandi:
Upplýsingar um tilslakanir á samkomutakmörkunum, birt 28.01.2022 á vef ÍSÍ
Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir og eftirfarandi eru helstu atriði er snerta almenning og íþróttastarf í landinu:
Hér er hægt að lesa frétt á vef Heilbrigðisráðuneytisins en beðið er eftir að reglugerðin verði birt til að sjá frekari útfærslu á reglunum.
Fólk fer í smitgát þegar það hefur umgengist eða verið á sama stað og einhver sem síðar greinist með COVID-19. Með því að vera í smitgát fækkar smitleiðum og við drögum úr útbreiðslu COVID-19. Smitgát er almennt 5 dagar.
Fyrir fólk hefur verið á sama stað og einhver sem síðar greinist með COVID-19 en býr ekki á sama heimili. Fólk í þessum hópi er ekki skráð formlega í smitgát og þarf ekki að fara í PCR til að ljúka henni.
Ef einhver á heimilinu smitast af COVID-19 og aðrir heimilismenn hafa fengið þrjár bólusetningar, eða hafi sögu um COVID-19 og tvær bólusetningar. Það fólk fer í smitgát sem lýkur með PCR prófi eftir 5 daga. Athugið þó að ef ekki er aðskilnaður á heimilinu milli þess sem er í einangrun og annarra heimilismanna má ekki ljúka smitgát fyrr en eftir að einangrun er lokið.
Ekki fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri. Þau eru undanþegin smitgát vegna útsetningar utan heimilis en ef smit er á heimili fara þau í sóttkví.
Bera grímu í margmenni.
Bera grímu þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni.
Forðast mannmarga staði.
Sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
Gæta vel að persónubundnum sóttvörnum.
Fylgjast vel með einkennum og fara beint í PCR sýnatöku ef þau koma fram.
Helstu einkenni COVID-19: Hiti, hósti, kvefeinkenni, hálsbólga, slappleiki, þreyta, höfuðverkur, bein-/vöðvaverkir, skyndileg breyting á lyktar- eða bragðskyni, kviðverkir og niðurgangur.
Sýnatöku vegna einkenna er hægt að panta á Heilsuveru á Mínum síðum (með rafrænum skilríki) eða gegnum netspjall Heilsuveru. Einnig er hægt að hringja í heilsugæsluna á dagvinnutíma, eða utan dagvinnutíma á Læknavaktinni í 1700.
Upplýsingar um COVID-19 og netspjall er í boði á covid.is.
Til sambandsaðila ÍSÍ
Á miðnætti var slakað á reglum um sóttkví og eru reglurnar nú í aðalatriðum eftirfarandi:
Aðrar reglur um samkomutakmarkanir gilda áfram og helstu atriði er varða íþróttahreyfinguna eru eftirfarandi:
Áfram eru allir hvattir til þess að gæta vel að persónubundnum sóttvörnum og halda áfram að fylgja öllum reglum um samkomutakmarkanir og sóttvarnir.
Hér á vef heilbrigðisráðuneytisins má lesa nánar um breytingu á reglum um sóttkví
Íþróttastarf fær að halda áfram í 50 manna hólfum og á það við um börn og fullorðna. Þó verða áhorfendur á öllum íþróttaviðburðum bannaðir en heimilt að hafa fjölmiðlafólk að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Við sendum út frekari upplýsingar eftir því sem þær berast.
Æfingar hjá yngri flokkum fara aftur af stað
Að öllu óbreyttu hefjast æfingar hjá yngri flokkum HK að nýju þriðjudaginn 4. Janúar (einhverjir flokkar nú þegar byrjaðir) að því gefnu að ekkert breytist varðandi reglur um þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi.
Búið er að opna fyrir skráningar og viljum við minna foreldra á að ganga þarf frá skráningu iðkenda í vorönn þar sem það á við.
Í ljósi stöðu mála viljum við brýna fyrir okkar fólki mikilvægi þess að fylgja reglum og viðmiðum um sóttvarnir og sér í lagi smitgát.
Þótt smitgát sé ekki formlega skipuð sóttkví er engu að síður mikilvægt að sýna aðgát og æskilegt er að forðast mannmarga staði að óþörfu og sleppa fjölmennum viðburðum.
Við viljum hvetja fólk til þess að sýna aðgát og samfélagslega ábyrgð. Að því sögðu þá viljum við óska eftir því að iðkendur í smitgát mæti ekki á æfingar fyrr en eftir neikvætt fyrsta hraðpróf.
Einnig viljum við biðja aðstandendur, eldri iðkendur og aðra þá sem koma inn í íþróttahús HK um að bera grímur á göngum.
Að lokum viljum við hvetja iðkendur til þess að dvelja ekki að óþörfu í húsinu svo blöndun og skörun hópa sé sem allra minnst. Eru tilmæli þessi sett fram vegna þess hve erfitt hefur reynst að halda utanum og greina þörf fyrir smitgát og sóttkví.
Við vitum öll hve íþyngjandi og lýjandi þetta ástand er en við höfum fulla trú á að saman verði baráttan unninn!
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi þann 23. desember og eftirfarandi eru helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna:
Frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.
Reglugerð heilbrigðisráðherra birt þann 21.desember.
Minnisblað sóttvarnalæknis frá 20. desember.