Endurnýjun gervigrass

Í dag hófust framkvæmdir í knatthúsi Kórsins þar sem verið er að skipta um gervigras. Áætluð verklok eru 6. ágúst og er því knatthús Kórsins lokað frá og með 20. júlí - 6. ágúst. Öll umgengni um knatthúsið er því með öllu óheimil á meðan framkvæmdinni stendur og bendum við foreldrum og iðkendum á að ganga í kring um húsið vestan megin til að komast frá bílastæðinu og að gervigrasvellinum fyrir utan Kórinn. 

Þökkum tillitsemina,
Framkvæmdastjóri