- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Glódís Perla Viggósdóttir er Knattspyrnukona ársins í fyrsta skipti. Hún hefur verið fastur hlekkur í vörn Bayern München og íslenska landsliðsins á árinu, líkt og áður. Á síðastliðnu keppnistímabili lenti Bayern München í öðru sæti í þýsku úrvalsdeildinni og komst í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Liðið situr nú í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og er í harðri baráttu við Barcelona og Benfica um að komast áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Glódís Perla lék 11 leiki með landsliðinu á árinu, þar af var hún í byrjunarliðinu í öllum þremur leikjum liðsins á EM í Englandi. Við erum stolt af þér Glódis!