Netárás á hýsingaraðila HK

HK hefur verið upplýst um netárás á fyrirtækið Wise sem veitir HK þjónustu á sviði vinnslu og hýsingar tölvugagna. Samkvæmt upplýsingum frá Wise var öryggisáætlun fyrirtækisins virkjuð um leið og vart varð við árásina og er unnið í samræmi við hana, m.a. með aðstoð sérfræðinga frá netöryggisfyrirtækinu Syndis. HK hefur tilkynnt Persónuvernd um atvikið í samræmi við lög.

Wise er vottað samkvæmt alþjóðlegum öryggisstöðlum og sú þjónusta sem HK nýtir hjá Wise lýtur að fjárhagskerfum félagsins. Wise hýsir persónugreinanleg gögn frá HK sem lúta einkum að bankafærslum milli HK og einstaklinga. Árásaraðilar komust mögulega yfir gögn sl. fjögurra ára. Þau gögn sem gætu varðað starfsmenn og félagsmenn HK eru kennitölur, bankaupplýsingar og fjárhæðir, en ekki er um aðrar persónuupplýsingar að ræða.
HK mun áfram fylgjast með þróun mála og og veita upplýsingar um stöðuna þegar þær liggja fyrir.