Ómar Ingi hættir þjálfun meistaraflokks karla

Ómar Ingi Guðmundsson
Ómar Ingi Guðmundsson
Ómar Ingi hættir þjálfun meistaraflokks karla.
 
Fyrr í kvöld varð ljóst að Ómar Ingi Guðmundsson mun ekki halda áfram þjálfun meistaraflokks karla í knattspyrnu, en samningur hans rann út eftir nýafstaðið tímabil. Unnið var að því að framlengja við hann en að eigin ósk ákvað hann að róa á önnur mið.
 
Stjórn knattspyrnudeildar þakkar Ómari Inga fyrir góðar stundir í Kórnum og ómetanlegt framlag til félagsins undanfarin ár. Ómar sem er svo sannarlega einn af dáðardrengjum HK hefur í gegnum árin unnið gífurlega gott starf og komið náið að uppgangi knattspyrnudeildar HK.
 
Við óskum Ómari velfarnaðar í komandi verkefnum og vonumst til að sjá hann áfram í einhverju hlutverki fyrir félagið næstu árin.
 
Leit er hafin að eftirmanni Ómars og mun stjórn deildarinnar vinna hart að því að fá inn þjálfara sem mun leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun liðsins með faglegum og metnaðarfullum hætti.
 
#TakkÓmar🔴⚪