Velkomin Mónika Hlíf

Velkomin Mónika Hlíf

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir er gengin til liðs við HK og gerir samning út tímabilið 2025.

Mónika, sem er uppalin í Stjörnunni, var seinast á mála hjá FC King George í Danmörku.

Við bjóðum hana hjartanlega velkomna og er hún án efa liðsstyrkur við hópinn sem berst um sæti í Bestu deild kvenna!