02.02.2023
Guðni Þór Einarsson framlengir við HK
Guðni Þór og HK hafa náð samkomulagi um áframhaldandi samning sem þjálfari meistaraflokks kvenna. Guðni hefur verið við stjórnvölin hjá meistaraflokk kvenna í eitt tímabil og stýrði félaginu í Lengjudeildinni í fyrra þar sem liðið lenti í 4 sæti sem er frábær árangur hjá ungu liði HK.
„Guðni er mjög fær þjálfari sem við í HK höfum mikla trú á, það er því gríðarlega ánægjulegt að hann hafi gert nýjan 3ja ára samning við félagið. Guðni hefur mikinn metnað fyrir hönd félagsins sem og leikmanna og það er gaman að fylgjast með leikmönnum blómstra undir hans stjórn. HK er stórt félag með mikinn efnivið og skýra framtíðarsýn fyrir meistaraflokkinn, það er því frábært að vera með svona traustan og faglegan þjálfara„ segir María Rúnarsdóttir formaður meistaraflokksráðs kvenna.