Frístundabíllinn fer af stað

Frístundarbíllinn fer af stað mánudaginn 2. september 2024.  Fyrirkomulag vagnsins verður eins og á vorönn 2024 og verður aksturinn í boði mánudaga til fimmtudaga.

Frístundavagninn verður mannaður með starfsmönnum sem aðstoða börnin við að spenna beltin, passa upp á dótið sitt og fara út á réttum stað.  Foreldrar greiða hóflegt gjald fyrir þjónustuna og skrá börnin sín í gegnum Abler.