Heba Sól til Tékklands

Við erum ótrúlega stolt af HK-ingunum okkar sem eru eða hafa verið að spila á erlendri grundu. Starfið í blakdeild HK hefur gert mörgum ungum leikmönnum kleift að upplifa ævintýri erlendis og fögnum við því. Í vor gerði Heba Sól Stefánsdóttirsamning við liðið Volekbal Přerov í Tékklandi og spilar þar í efstu deild. Tímabilið hjá þeim byrjar í lok september. Við óskum Hebu góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með henni vaxa áfram og dafna