Hjörtur Ingi framlengir

Hjörtur Ingi Halldórsson framlengir samning sinn við HK

 

Hjörtur Ingi Halldórsson hefur framlengt samning sinn við HK til tveggja ára. Hjörtur er markahæsti leikmaður HK á síðasta tímabili og hann hefur verið einn allra öflugasti leikmaður HK um nokkurt skeið. Það ríkir mikil ánægja með að Hjörtur hafi ákveðið að framlengja samning sinn við HK.

Hjörtur hefur verið lykilmaður liðsins og það er sérstaklega ánægjulegt að hann vilji halda áfram að leiða þann öfluga hóp sem hjá okkur er. Það verður gaman að fylgjast með Hirti og strákunum taka slaginn í Olísdeildinni í vetur.