HK á Olísmótinu

Olísmóts meistarar!

 

5 flokkur karla fór á Olísmótið á Selfossi um helgina með 7 lið og 72 iðkendur. Flott mót hjá Selfyssingum í góðu veðri alla helgina. HK 1 gerði sér lítið fyrir og vann sjálfan Olísmótsbikarinn eftir dramatískar lokamínútur í lokaleiknum til að tryggja sér bikarinn. HK 5 átti einnig frábært mót en þeir voru bæði deildarmeistarar eftir fyrri hlutann sem kláraðist á laugardeginum og vann Huppubikarinn á sunnudeginum. HK 7 vann svo Borgarverks neðri deildina eftir að hafa spilað frábærlega á lokadeginum, unnið alla þrjá leiki sína með markatölunni 19-1. Einnig voru HK 4 og HK 6 einstaklega óheppnir en bæðu þau lið lentu í 2 sæti og voru hársbreidd frá fyrsta sætinu í sínum riðlum.

 

HK þakkar Selfossi fyrir flott mót og óskar okkar strákum til hamingju með flottan árangur.

 

Þjálfarar flokksins eru Frans Wöhler, Arnar Freyr Gestsson, Hörður Máni Ásmundsson og Bjarni Valur Valdimarsson.