HK átti 91 keppanda á N1 mótinu

HK á N1 mótinu
Fyrr í sumar sendi 5. flokkur karla 10 lið til leiks á N1 mótinu sem fór fram á Akureyri, alls  91 iðkandi. Strákarnir stóðu sig vel og voru félaginu til sóma bæði innan vallar sem og utan. Öll lið HK voru skírð eftir uppöldnum leikmönnum sem spila með meistaraflokki HK. Liðið HK Tumi Þorvars kláraði svo mótið með að vinna Grísku deildina, þeim tókst það með mikilli liðsheild og baráttuanda.
 
Við þökkum þeim fyrirtækjum kærlega fyrir sem styrktu flokkinn!