Hrafnhildur Arín semur við HK

---

Hrafnhildur Arín Sigfúsdóttir hefur skrifað undir samning við HK.

Hrafnhildur er 24 ára gömul og er uppalin hjá ÍA og spilaði með liði Loyola University í Maryland í vetur. 

Hrafnhildur er fjölhæfur leikmaður og getur leyst allar stöður á miðjunni. Hrafnhildur spilaði sinn fyrsta leik í HK treyjunni nú í maí. 

Við bjóðum Hrafnhildi velkomna í HK

Ljósm. Hulda Margrét