Samúðarkveðjur til fjölskyldu Bryndísar Klöru

Handknattleiksfélag Kópavogs sendir fjöl­skyldu og vinum Bryn­dís­ar Klöru Birg­is­dótt­ur dýpstu samúðarkveðjur. HK hvetur allt samfélagið til að taka saman höndum gegn ofbeldismenningu ungmenna og barna. 

Handknattleiksfélag Kópavogs hefur ákveðið að leggja Minningarsjóði Bryndísar Klöru lið og skorum við á öll íþróttafélög á landinu að gera slíkt hið saman. Saman erum við sterkari! 

Minningarsjóður Bryndísar Klöru er í umsjón KPMG og verndari sjóðsins er forseti Íslands, Halla Tómasdóttir.

 0515-14-171717
430924-0600

Fyrir hönd aðalstjórnar HK
Sandra Sigurðardóttir