Sjálfboðaliðar óskast 7. ágúst kl.16:00

Um þessar mundir er verið að skipta um gervigras í Kórnum og fer framkvæmdum senn að ljúka. Við þessa framkvæmd myndast gríðarlega mikið ryk og starfsfólk Kórsins annar ekki  þrifum á þeim stutta tíma sem myndast á milli þess sem framkvæmdum er lokið og fram að fyrsta leik í Kórnum. 

Við óskum því eftir sjálfboðaliðum til að mæta í Kórinn og láta hendur standa fram úr ermum miðvikudaginn 7. ágúst kl.16:00-18:00 svo allt verði orðið fínt fyrir leik 
HK-KR í Bestu deildinni sem verður fimmtudaginn 8. ágúst kl.19:15.

 

-Framkvæmdastjóri