Árskortasala knattspyrnudeildar HK 2023 er hafin

 

Árskort á heimaleiki mfl. karla og kvenna HK í fótbolta eru nú boðin til sölu fyrir komandi tímabil. Kortin gilda á alla heimaleiki knattspyrnudeildar HK í deildarkeppni karla og kvenna sumarið 2023. Sala á árskortum mun fara fram í gegnum miðasöluappið Stubb og verða þau eingöngu rafræn í ár. 

 

Eftirfarandi kort eru í boði:

 

Árskort fyrir 16 til 20 ára 

Verð kr. 9.990

Kortið gildir á alla heimaleiki knattspyrnudeildar HK í deildarkeppni karla og kvenna sumarið 2023.

 

Árskort fyrir 20 ára og eldri

Verð kr. 19.990 

Kortið gildir á alla heimaleiki knattspyrnudeildar HK í deildarkeppni karla og kvenna sumarið 2023.

 

VIP kort

Verð kr. 59.990 

Kortið veitir aðgang á alla heimaleiki knattspyrnudeildar HK í deildarkeppni karla og kvenna sumarið 2023.

Auk þess veitir kortið aðgang í VIP-stúkuna klukkustund fyrir leik, en þar verður boðið upp á léttar veitingar frá Pure deli.