- HK
- Um HK
- Skráning
- Fréttir
- Veislusalur
- Hlaupahópur
- Íþróttaskóli
- Frístundarvagn
- Rafíþróttadeild
- Árskort
- Bandý
- Borðtennis
- Blak
- Dans
- Fótbolti
- Handbolti
- Rafíþróttir
Vinna er hafin við það að sækja um að verða aftur fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaverkefni íþrótta-hreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi. Íþróttafélög og deildir innan félaga geta sótt um viðurkenningu til ÍSÍ að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þegar viðurkenning hefur verið veitt gildir hún í fjögur ár.
Til að fá gæðavottun ÍSÍ um fyrirmyndafélag þarf að uppfylla nokkur viðmið. Eitt af því er að rödd unga fólksins heyrist og að ungmenni á aldrinum 16 - 25 ára sé áheyrnarfulltrúi í stjórn. HK auglýsir því eftir ungmenni á aldrinum 16 - 25 ára sem hefur áhuga á því að starfa fyrir félagið og láta gott af sér leiða.
Áhugasamir hafi samband við framkvæmdastjóra sandra@hk.is